nýtt blogg

09. ágúst 2008 klukkan 15:29
er komin með nýja síðu, er þreytt á að þessi sé alltaf að bila!
sylviaosk.blog.is- tjékk it át :)

later

Skipulögð.is

28. júlí 2008 klukkan 12:34
halló...

Úff hvað er erfitt að vera í sumarfríi og hafa ekkert að gera! Það kom einhver þvílíkur skipulagsofvirknisandi yfir mig þegar sumarfríið byrjaði og hann er ekki enn farinn!! Hef aldrei vaknað seinna en 7, farið í fjósið 2 á dag, farið í þrek 2 á dag og samt náð að þrífa húsið marg oft inná milli og náð 2 ikea ferðum og keypt helling í húsið okkar!! Geri aðrir betur!! (augnablikið þar sem allir hugsa: GET A LIFE)..
Mamma og pabbi voru líka svo yndislega að gefa mér svona hálfgerðan ruggustól, rosa flottan sem mig er búið að langa lengi í, hann er æði :D

Annars er nú ekki mikið að frétta úr fríinu mínu, erum reyndar búin að negla niður kanaríferðina okkar og förum við 14 janúar og komum heim 28 janúar, voða fínt :) Erum líka orðín nokkuð mörg sem erum að fara: Ég, Þröstur, Jón, Ólafur, Sigga Lóa og Gylfi, og svo Gummi og hugsanlega einn í viðbót með honum! Bara stuð!!

En ég hef samt voða lítið að segja eitthvað, ætla að fara að skúra, later...

chao

Sumar...

10. júlí 2008 klukkan 21:53
halló...


ohhh hvað ég er innilega ekki að standa mig í þessu bloggi, enda er sumar :)


Loksins laus við ungana, þeir fóru í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn sem er bara gott mál Brosandi

Svo eru írskir dagar búnir og það var ROSALEGA GEÐSJÚKT ÓTRÚLEGA gaman!! Bara þvílík stemming og ég skemmti mér ógeðslega vel! Enda var ég þreytt fram á miðvikudag eftir þetta djamm Glottandi

Svo er bara búið að vera rosalega gott veður seinustu daga og litla Sylvía sagði orðrétt um 2 leytið á mánudaginn í vinnunni; ég held ég eigi ekkert eftir að brenna, ég er búin að vera slatta mikið í sólinni og ekki brunnið enn..... STUPIDSTUPIDSTUPID! Þegar ég fór inn klukkan hálf4 þá var ég svo brunnin á öxlunum að ég er enn rauð og aum! Enda búin að fjárfesta í sólarvörn, enginn ljóskuskapur meira Ullandi

Svo styttist bara og styttist í sumarfríið mitt, veiti eiginlega varla hvað ég á að gera af mér þar sem Þröstur verður að vinna, en ég ætla allavega að kíkja með Siggu Lóu í bæinn og kíkja í heimsókn til Nönnu minnar og annað er ekki ákveðið en það ætti allavega að vera eitthvað gaman hjá mér Hlæjandi

En ég nenni bara ekki að skrifa meira, svo ég bið bara að heilsa..

chao

Ungarnir :)

28. júní 2008 klukkan 22:42

halló..

jæja, ég sem sagt orðin ungamamma núna! Það kom einn ungi um miðvikudagsnóttina og svo á fimmtudeginum urðu þeir 6, svo komu númer 7 í gær og 8 í dag, erum reyndar ekki alveg viss um þennan seinasta því hann er rosa veiklulegur, hann komst ekki sjálfur úr egginu svo við tókum hann úr egginu og ætlum að láta það ráðast hvort hann hafi það af eða ekki en mér sýnist hann ætla að braggast, vona það allavega..

Það er sem sagt búið að vera mikið stuð hér, höfðum þá til að byrja með í þvottakörfu inní fataherberginu okkar og ég hélt að þeir yrðu ekkert voða aktívir svona strax eftir að hafa klakst út, i was wrong!!
Vaknaði sem sagt klukkan 5 um föstudagsmorguninn og heyrðu svo mikil læti í ungunum og fannst það vera svo hátt og nálægt að þeir gætu eiginlega ekki verið inní herberginu svo ég kíkti fram, þá var sko bara partý inní stofu hjá mér! Búnir að skíta út um allt og voru bara hressir svo að ég þurfti að finna eitthvað annað undir þá þarna og þurka aðeins af gólfinu og þrífa klukkan 5 um morgun Óákveðinn Náði að klára það svona um korter í sex og ætlaði þá aðeins að ná hálftíma svefn í viðbót en neinei, þá voru einhverjar yamakasi flugur inní herberginu sem ætluðu INN Í hausinn af mér svo að ég náði engum svefni.. Fýldur

Svo að lokaði þá inní fataherbergi og þegar ég kom heim eftir vinnu var skítur út um allt herbergi svo ég fann stóran kassa sem ég var pottþétt á að þeir kæmust ekki uppúr og tók allt húsið í gegn og skúraði enda var sko andaskítur UPP Á SKÚFFUNUM Á EINNI KOMMÓÐUNNI!! ótrúlegt en satt!

Vaknaði svo í morgun um 10 leytið því mér fannst ég heyra óvenjuhátt tíst frammi, og neinei, var þá ekki einn unginn kominn upp úr kassanum! Hissa Ég var orðin pínu þreytt á að veiða unga út um allt hús og bara arg, how do they do that??
 Þá eru svona göt á kassanum, frekar hátt uppi, fyrir handföng sem að einn unginn var búinn að fatta að hoppa uppá og í gegn, tróð í það svo með viskustykki við lítinn fönguð ungana!
Tókum þá svo aðeins uppúr í dag og leyfðum þeim að vera á eldhúsgólfinu og vorum með smá skál á gólfinu til að busla í og það var ekkert smá gaman að horfa á þessa hnoðra leika sér, þeir eru svo ótrúlega sætir Hlæjandi

Skelli svo hérna nokkrum myndum af krílinum og læt þetta gott heita!

chao




Eggin að byrja að klekjast út..


Sætusætu..




Buslið!

fleiri myndir á myspace.com/sylviasveito

Ungamamma!

25. júní 2008 klukkan 22:09
halló..

Jæja, ég ætla nú að byrja þetta blogg á lítilli sögu um nokkur andaregg. Andareggin vrou 9 talsins og bjuggu í sátt og samlyndi útá túni með mömmu sinni... þangað til að stóra slátturvélin kom og andamamma var svo staðráðin í því að passa eggin sín að hún flaug ekki upp heldur lenti í slátturvélinni og fór í öreindir út um allt tún. Sem betur fer sá fólkið á slátturvélinni eggin áður en vélin lenti á þeim og tók eggin að sér! Fólkið fór með eggin heim og ákvað að reyna að unga þeim út bara í virðingarskyni við önduna sem fórnaði sér, en trúði ekkert á að það myndi nokkuð koma úr þeim miðað við allt sem var búið að ganga á! Svo að eggjunum var komið fyrir ofan á hreindýraskinni ofan á ofni og með ullarsokka með ábreiðu, það var fyrir 8 dögum...
Svo kom húsfreyjan heim í dag og ákvað að snúa eggjunum og skildi ekkert af hverju henni fannst eitt eggið hreyfast í hendinni á sér svo hún skoðaði þau betur, þá eru þau öll að byrja að ungast út með tilheyrandi hreyfingum og tísti!!

Jáhá, það er bara þannig að ég er að verða ungamamma Hissa Mér finnst þetta alveg ótrúlegt að þau séu virkilega að ungast út! En svo náttla kemur bara í ljós hvort að þeir lifi þetta af en ég lofa að segja frá um leið og eitthvað skeður!

Annars er nú alveg einhver slatti að frétta, er búin að taka tvo djömm seinustu helgar. Fyrri helgina var pabbi minn að útskrifast úr háskólanum sem véliðnfræðingur (vissi að gáfurnar mínar kæmu frá góðum stað) svo að mamma mín hélt svona suprise partý heim þar sem stór hluti af ættinni mætti og ég skemmti mér alveg konunglega og þá sérstaklega á leiðinni á vinakaffi, haha Glottandi

Svo um seinustu helgi kíkti ég svo aftur út með stelpunum, Elínu og Sigurborgu, og skemmti mér líka mjög vel þá! Þröstur greyið á alveg slatta af keyrslu inni hjá mér Ullandi

Svo eru bara írskir dagar og bústaður með Hafdísi framundan og vonandi kemst Nanna mín líka eitthvað til mín, blogga á næstu dögum svo um afdrif eggjana... Hef þetta ekki lengra í bili.. :)

chao

Eurovision og annað..!

04. júní 2008 klukkan 20:12
Halló...

Jæja, nú hef ég eitthvað til að skrifa um, vúhú Ullandi

Allavega kom Nanna til mín um Eurovision helgina og við skemmtum okkur mjög vel, ætluðum í drykkjuleik þannig að við myndum taka sopa fyrir hvert stig sem að ísland fékk en við sáum fljótlega að það myndi ekki ganga upp svo að við byrjuðum bara að drekka eins og vitleysingar Glottandi En það var sjúkt gaman, kíktum á mörkina og það var bara fínt! Vöknuðum svo ekkert alltof seint daginn eftir og skelltum okkur í sund og ís í góða veðrinu, mjög góðir tveir dagar og get ekki beðið eftir að fá kelluna mína aftur í heimsókn, takk fyrir helgina Nanna mín Hlæjandi
Man samt ekkert eftir Rússneska laginu þó það hefði unnið, það eina sem ég man eftir var þessi brjálaði skautadansari Óákveðinn

Svo reyndar skellti ég mér aftur á djamm um seinustu helgi þar sem systir hans Þrastar var að útskrifast úr LBHÍ, fékk tvenn verðlaun og allt Brosandi Sigurborg elskan var svo væn að keyra okkur og ég skemmti mér mjög vel, Elín bjargaði alveg kvöldinu þar sem að Dj-in á Mörkinni var ekki að gera neina góða hluti...Ullandi

Fór svo líka í sund þann sunnudaginn og fór í rennibrautina í fyrsta sinn í langan tíma og fer pottþétt ekki aftur þar sem að ég hélt bókstaflega að allt fyrir neðan nafla myndi FRJÓSA AF MÉR þegar ég lenti í þessum ÍSPOLLI sem að rennibrautalaugin var, brrrr....

En allt annað gengur sinn vanagang eins og alltaf, þrek þrek þrek og vinna vinna vinna... Þarf virkilega að finna mér eitthvað hobbý svo maður geti nú skrifað eitthvað sniðugt hér... Verð bara að vera dugleg að djamma í sumar svo ég geti bloggað Svalur

Eiginlega eina sem mér dettur í hug að skrifa um núna er þetta ísbjarnarmál, hvað á manni að finnast um þetta? Ég held persónulega að það hefði verið hægt að koma greyinu í burtu en fyrst að þurfti að skjóta hann finnst mér alveg fáránlegt að það þurfi að klína myndum af líkinu út um allt, ég hef engan áhuga á að sjá einhverja gúmmítöffara með byssurnar sína draga líkið eftir grjótinu bundið á höndum og fótum!! Alveg hægt að vera aðeins mannúðlegri í meðferðinni á þessu máli...

en ég nenni bara engan vegin að skrifa meira núna, KOMMENTA Glottandi

chao

Ísland- Bezt í heimi!

22. maí 2008 klukkan 22:50
Halló...

Jæja ég ætla nú að byrja þessa færslu á að óska henni móður minni innilega með afmælið í gær, en kellan varð 35+ ára Brosandi Og aldrei verið myndarlegri en nú :)

Og svo gerast kraftaverkin enn, Ísland áfram í Eurovision, enda áttu þau þetta svo innilega skilið því þau voru FRÁBÆR á sviðinu, ekkert klikk og brjálað góðar raddir, mitt litla þjóðarstolt var mjög ánægð með þau Ullandi

Svo er bara aðalkeppnin á laugardag og ég er að vonast til að Nanna mín geti komið til mín en það eru víst ágætis líkur á því, þá er það öllari+eurovision+djamm(?)= FULLKOMIÐ!

Annars er nú bara allt ágætt að frétta, fórum suður á laugardag að versla, nýbúin að fá orlofið og slíkt og ég verslaði pils (á 500 kall í kolarportinu, heavy flott), levi's gallabuxur (ekki á 500 kall...), tvo boli og ýmislegt smálegt.. Þröstur keypti sér tvennar gallabuxur og tvær skyrtur og hann var ekkert smá flottur, ég var varla á því að hleypa honum út um kvöldið Glottandi Reyndar í fyrsta skipti sem að hann eyðir meira í föt en ég...
 En við hittum Siggu og Ólaf og litla prinsinn í Rkv og kíktum með þeim í búðirnar og svo út að borða, keyrðum svo út á skaga þar sem strákarnir kíktu út í bjór meðan ég og Sigga fórum eiginlega bara að sofa, sweet... Takk fyrir daginn elskurnar Hlæjandi

Svo fór ég reyndar aftur suður á þriðjudag til læknis og kíkti aðeins í búðir og keypti klikkaða skyrtu í VeroModa, ódýr og flott. Var reyndar meikblettur í henni sem fór alveg úr en þegar ég benti þeim á þetta þá sögðu þeir bara að þeir gætu sent hana í hreinsun fyrir mig! Er þá ekki betra að gefa 10%afslátt heldur en að borgar kannski 1000 kall fyrir hreinsun, ég bara spyr..
Fékk svo geðveika peysu frá Fígúru, svört með gylltum og fjólubláum froskum, soldið Sylvíuleg...

Og miðað við það sem ég er búin að skrifa er greinilegt að þetta er búinn að vera mikill fatamánuður enda er ég búinn með kvótann fyrir sumarið Saklaus

Þetta er eiginlega bara allt sem er búið að ske, það er brjálað að gera hjá manni eins og er: þrek, vinna, þrek, fjós, sofa.. Þetta er eiginlega dagurinn hjá mér alla daga vikunnar svo að maður er frekar lúinn, plús það að ég er búin að næla mér í einhvern kvefvibba Óákveðinn En ég vona bara að það fari að skána, hef engan tíma til að vera lasin :p

en ég læt þetta gott heita í bili

chao

p.s. gleymdi nú að skrifa það seinast að Hafdísin mín átti afmæli 6.maí, til hamingju með það rúsínan mín Hlæjandi

Hvað er að fólki..!

11. maí 2008 klukkan 22:51
halló..

Ég ætla bara að byrja á því að setja hér inn slóð sem ég rakst á inn á 69.is, http://dyraland.is/dyr/64994/vefbok , ég verð svo reið þegar ég les svona sögur og alltaf skulu þær tengjast Dalsmynni! Loka þessum helvítis stað og finna almennileg heimili fyrir hundana, þetta er hræðilegt og get ekki einu sinni hugsað mér hvað ég hefði gert ef að ég hefði lent í því sama og þessi kona, arg! Öskrandi

Jæja, þessi bloggfærsla byrjar sem sagt ekki á gleðilegu nótunum en það skánar nú aðeins því ég ætla líka að lýsa staffaferðinni sem var 3.maí og var alger SNILLD!
Ég og Soffía hittumst heima hjá múttu og allir áttu að vera með fylgihluti svo við settum í okkur smá gervihár, settum upp buff og sólgleraugu og vorum illar svalar Glottandi
Byrjuðum á að mæta uppí leikskóla og fara í rútuna af stað og auðvitað var opnaður einn kaldur strax á brúnni :)
Byrjuðum á að keyra í Laugardalinn þegar í Reykjvíkina var komið og þar var farið í alls konar leiki eins og drumbakast, axarkast (kannski ekkert alltof sniðugt eftir nokkra bjóra) og rúsínan í pylsuendanum var þegar við vorum látnar hlaupa að stórum keilum, setja ennið efst á keiluna og hlaupa þannig 10 hringi og svo aftur til baka, vorum eins og illa drukknar beljur á svelli, ekkert smá fyndið Hlæjandi

Svo fórum við í LaugarSpa og slöppuðum af, létum áfengið aðeins gufa af okkur.. Svo gerðum við okkur fín og fórum á CaféVictor að borða, virkilega vondur matur en klikkað góð stemming og þetta var bara yndisleg ferð í góðum hóp og get ekki beðið eftir að endurtaka þetta Svalur

Svo kíkti ég aðeins á skagann með Þresti og hittum Siggu Lóu og Óla, kíktum á Mörkina, það var reyndar frekar leiðinlegt þar, allt fullt af útlendingum og Djinn var í einhverju nostalgíu kasti að spila eldgömul og leiðinleg lög Óákveðinn En alltaf gaman að hitta Siggu og Óla Glottandi

Svo kom bara vikan eins og allar hinar vikurnar, reyndar átti ég mjög góða viku, fór nebbla í fitumælingu í feb/mars og mældist þá 25,7%, mest á lærunum.. Síðan hef ég bara verið að púlapúlapúla og fór í fitumælingu á föstudag og var þá ekki kellingin komin í 21.4 Svalur Heví sátt með það og ætla að púla áfram og ná þessu enn neðar! :)

Svo hef ég nú meira til að hlakka til þar sem við erum að fá orlofið okkar og ég og Þröstur erum á leiðnni suður á laugardag og ætlum að panta tíma í tattú! Ætlum sko að láta tattúvera nöfnin á hvort öðru á handleggiina á okkur.....NEi, bara að stríða ykkur, erum ekki alveg að tapa okkur hér! ég ætla nú bara að láta laga tattúin sem ég er með og hann ætlar að fá sér eitthvað smá Brosandi

En ég læt þetta gott heita í bili..

chao

Hvað er í gangi?'

24. apríl 2008 klukkan 22:04
halló..

jæja bloggedí blogg.. Reynar er alveg slatti sem mig langar að blogga um og er mér efst í huga mótmæli vörubílstjóra og átökin öll og ég er ekki alveg með á hreinu hvern maður á að styðja..
Fyrir það fyrsta er ég reyndar alveg á móti því hvernig lögreglan hagaði sínum aðgerðum í mótmælunum í gær, einhver lögguhálfviti standandi argandi GAS GAS og alltaf verið að sprauta út í loftið, mjög asnalegt.!

En svo ná vörubílstjórarnir alltaf að skemma fyrir mér með því að opna munninn. Fyrst var það þegar maðurinn grýtti lögregluþjóninn og löggan hljóp hann uppi og þá var kvartað yfir meðferðinni á grjótkastarnum, HALLÓ ef þú vilt ekki fá nokkra löggukalla ofan á þig með kylfur og táragas þá áttu ekki að kasta grjóti í þá!
Hitt dæmið var mjög svipað og gerðist í dag þegar einn af talsmönnum vörubílstjórana réðist á lögregluþjón, þá talaði þessi Sturla (sem hefur sig mest frammi í þessum mótmælum) um meðferðina á árásarmanninum, að hann hafi ekki getað labbað í burtu og meitt sig, enn og aftur HALLÓ! er fólk alveg heiladautt, ef þú vilt ekki meiða þig og lenda í fangelsi þá ræðstu ekki á lögregluna, þarf engan Einstein til að fatta það Óákveðinn
Ég vill alveg fá lægra verð á bensíni og allt sem þessir menn eru að berjast fyrir en þeir skemma allt sem þeir vilja standa fyrir með því að haga sér svona..

En ég ætla bara að láta þetta duga um mótmælin..

Mitt líf stendur bara í sínum föstu skorðum með vinnunni, þreksalnum og fjósinu, vigtin er reyndar aðeins farin að gleðja mig þessa daganum svo maður er farin að vera extra duglegur Glottandi

Svo er bara alveg að koma föstudagur, finnst samt alveg eins og það sé laugardagur þar sem maður var í fríi í dag, er komin með alveg einstakan leiða á "gleðilegt sumar" setningunni en það er víst sumardagurinn fyrsti í dag, get ekki beðið eftir sumrinu og þá helst ÍRSKUM DÖGUM, þá verður sko stuð, allir að mæta þangað!

Svo verður víst næsta vika einstaklega skemmtileg, við í vinnunni erum að kaupa okkur cintamani peysur sem koma í næstu viku, það er frí á fimmtudeginum og svo er óvissuferð með vinnunni á laugardeginum, vitum reyndar alveg hvernig dagurinn er:
Mætt í bæinn og farið í laugardalinn og gert eitthvað sniðugt þar, svo er farið í afslöppun í laugar spa og svo er farið eitthvað fínt út að borða! Svo ætla ég reyndar að reyna að halda áfram að djamma og plata Þröstinn minn til að bruna út á skaga og halda áfram að djamma þar, Sigga Lóa ef þú lest þetta, taktu þá 3. maí frá ef hann er laus Glottandi

En ég læt þetta bara gott heita í bili..

chao

Já sæll!

08. apríl 2008 klukkan 22:21
halló..

vá hvað ég er húðlatur bloggari, og er ekki að nenna að blogga núna en ég ætla nú samt að koma með smá klausu fyrir ykkur sem nennið enn að kíkja hingað inn Brosandi

Páskahelgin var yndisleg í alla staði, fórum í sumarbústað með Siggu, Ólafi, Gylfa sæta, Jóni Erni og Guðnýju og svo kíktu Gummi og Hjördís líka á okku. Komum þangað á fimmtudegi og vorum fram á sunnudag og það eina sem lýsir þessari ferð er svefn, matur, póker, svefn, spil, sjónvarp og svo meiri svefn Hlæjandi Þetta var alveg hreint yndislegt og alltaf gaman að hitta bestu vini sína og litla prinsinn Hlæjandi

Kíktum svo út á lífið með Siggu Lóu og Ólafi núna um helgina og skelltum okkur á Mörkina, var eiginlega orðið frekar langt síðan við tókum djamm og það brást sko ekki frekar en fyrri daginn, það var ógeðslega gaman og verður vonandi endurtekið í bráð, takk fyrir gullin mín, bæði helgina og djammið Ullandi


ANnars gengur lífið bara sinn vanagang hérna eins og alltaf, erum orðin að fjósadýrum á kvöldin þar sem ég mjólka með tengdamömmu og Þröstur gefur heyið, svo er sauðburður líka hafin, fyrstu lömbin mættu á svæðið í gær, bara sætt Brosandi

En ég ætla bara að láta þetta duga í bili, og vona bara að ég nenni að blogga aftur innan næsta mánaðar Ullandi

chao

Prófíll

  • Nafn: Sylvía Ósk Rodriguez
  • Staður: Borgarnes
  • Atvinna: Leikskólinn Ugluklettur
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð :)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...